sunnudagurinn 01. ágúst 2010
Notendanafn: Lykilorð: Muna lykilorð?
English
Könnun
hefur þú verið í menntasmiðju
Já, einu sinni
Já, oftar en einu sinni
Nei, aldrei

Sjá allar
Mynd augnabliksins
Heimsóknir
Í dag: 2
Samtals: 265764
Velkomin
Menntasmiðjan á Akureyri sinnir almennri símenntun fyrir Akureyri og nágrenni.  Menntasmiðjan býður upp á nám í lífsleikni fyrir almenning, bæði konur og karla.  Hún sinnir ýmsu námskeiðahaldi fyrir opinbera aðila, auk þróunarstarfs og ráðgjafar í tengslum við ýmsa innlenda og erlenda aðila. 
 
Nám í Menntasmiðjunni skal stuðla að jafnrétti og bættum samskiptum, auka virkni og þekkingu samfélagsþegnanna og styrkja stöðu þeirra sem ýmissa hluta vegna þurfa stuðning. Segja má að Menntasmiðja kvenna sé rótin, og hugmyndafræði hennar um þríþætt nám sem er nýtt í öllu starfinu. Þar er átt við samþættingu sjálfsstyrkingar, sköpunar, og hagnýtra þátta í öllu námi.
 


The Learning Centre in Akureyri offers various courses in continuouseducation for Akureyri and the neighboring municipalities.  The Learning Centre also offers mobility training for the public, both men and women. The work at The Learning Centre includes research and development as well as consulting, in cooperation with various domestic and foreign parties.

The study aims for gender equality, improved communication as well as encouraging active citizenship. One might say that the heart of the operation is the Mobility Training Course for Women, with it's ideology of a threefold study being intertwined in all the work done at the Learning Centre.

Nýjustu fréttir
01.02.2010 11:38
Menntasmiðja  unga fólksins farin af stað
Menntasmiðja unga fólksins farin af stað
Miðvikudaginn 27. janúar byrjuðu 13 ungmenni í Menntasmiðju unga fólksins. Þetta er öflugur og fjölbreytilegur hópur og er allt útlit fyrir að þessi vorönn verði frískandi og skemmtileg.
17.08.2009 08:56
Kynning á Menntasmiðju kvenna
Kynning á Menntasmiðju kvenna

Þriðjudaginn, 18. ágúst klukkan 16:00 fer fram kynning á starfi Menntasmiðju kvenna.  Kynningin fer fram í húsnæði Menntasmiðjunnar í Rósenborg, 3. hæð.  Áætlað er að námið hefjist 2. september n.k. 

Allar konur velkomnar!


05.01.2009 15:25
Menntasmiðja unga fólksins að fara af stað

Námið hefst 21. janúar n.k.  og er  opið  öllum á aldrinum 17-25 ára.  Starfs-og námskynning er hluti námsins.  Námið er í anda lýðháskólanáms og hentar vel þeim sem standa á tímamótum og/eða eru að ganga í gegnum breytingar.

Kynningarfundur um námið verður haldinn í Menntasmiðjunni 14. janúar kl. 15:30.  Umsóknum skal skila til Menntasmiðjunnar  eigi síðar en 19. janúar 2009  á sérstökum eyðublöðum sem þar fást


05.01.2009 15:22
Útskrift Menntasmiðju kvenna
Útskrift Menntasmiðju kvenna

Þann 12.desember útskrifaðist fríður hópur 14 kvenna úr Menntasmiðjunni.  Forstöðufreyja, kennarar og námsmeyjar héldu ræður og þökkuðu samfylgdina í vetur. 

Menntasmiðjan óskar námsmeyjunum innilega til hamingju með áfangann og óskar þeim velfarnaðar í hverju því sem þær kunna að taka sér fyrir hendur.


26.08.2008 09:31
Menntasmiðja kvenna í startholunum
Menntasmiðja kvenna í startholunum

Miðvikudaginn 3. september hefst kennsla í Menntasmiðju kvenna.  Umsóknarfrestur rennur út 1. september og því um að gera að bóka viðtal við forstöðufreyju eða bara koma við og skoða ef áhugi er fyrir hendi. 

Námið hentar vel konum sem eru að takast á við breytingar eða standa á tímamótum í lífinu.


Skoða allar fréttir